|
Nú
er rétti tíminn til að fjárfesta í fasteign í Búlgaríu.
Verðlag í Búlgaríu er mjög hagstætt og er
allavega 30% ódýrara að lifa þar heldur en til dæmis á Spáni eða Ítalíu.
Og skiptir það mjög miklu máli eins og gengi
Íslensku krónunar er.
Gjaldmiðillin í
Búlgaríu heitir Levi og er gengið fast á móti Evru.
Ein Evra er alltaf 1,95 Levur.
Búlgaría fékk fulla aðild að Evrópusambandinu
1. janúar 2007 og er einnig NATO ríki.
Efnahagslíf er mjög stöðugt.
Mjög
auðvelt er að komast til Búlgaríu allt árið um kring.
Og er orðið mjög mikið af framboði með
lággjaldaflugfélögum allt árið.
Fjórar
árstíðir eru í Búlgaríu:
Heit sumur með
Miðjarðarhafsloftslagi (land sólblómana), falleg haust og er stórkostlegt að
sjá haustlitina í skógum landsins.
Stuttur vetur með snjó.
Mjög
stillt veður og frábær skíðasvæði.
Og
svo auðvitað falleg vor og alveg frábært að upplifa það að sjá skógana taka við
sér.
Mikil
uppbygging golfvalla er í landinu sérstaklega fyrir norðan
Varna
á svæði sem kallast
Golfströndin en það er svæðið sem liggur norðan af Golden Sands strandbænum sem
Íslendingar þekka nú orðið vel.
Og svo
er einnig mikil uppbygging golfvalla á svæðinu við Bansko skíðasvæðið og verður
það paradís útivistarfólksins.
Góð
aðstaða er til að stunda stang og skotveiði.
En
Búlgaría er talið vera eitt best varðveitta leyndarmál Evrópu eins og dæmisagan
segir.
"Sagt er að í byrjun tímans,
þegar lönd og þjóðir voru að myndast, hafi guðirnir kallað þjóðir heims til sín
og úthlutað þeim ýmsum góðum hlutum svo sem: Englindingar fengu haf,
Austuríkismenn fengu fjöll, Rússar fengu steppur, Spánverjar dansinn, Ítalir
tónlist, Frakkar vín, Grikkir bókmentir og svo framvegis. Þegar allar þjóðir
heims höfðu fengið sitt, tóku guðirnir eftir því að eina þjóð vantaði, Búlgarar
voru síðastir til að mæta í þessa úthlutun því þeir höfðu haft svo mikið að
gera
. Fullir vonbrigða spurðu þeir guðina afhverju þeir væru
skildir eftir? Guðirnir brostu og sögðu: við munum ekki senda ykkur heim tómhenta.
Við munum gefa ykkur sneið af öllum þeim góðu hlutum sem við höfum gefið öðrum
þjóðum."
En
við hvetjum alla þá sem áhuga hafa á að fjárfesta í Búlgaríu til skoða fyrst.
Og hvetjum við áhugasama að hafa samband við
söluráðgjafa okkar.
Og sjá hvað við
getum boðið ykkur upp á.
Marsveinn
Lúðvíksson
2heimili@dobro.is
|