Hérna er brautarlýsing á Pirin Golfvellinum sem INFINTY stendur við. Völlurinn er hannaður af Ian Woosnam. Og verður þarna rekin ein stærsta Golf Academia í mið og suðaustur Evrópu.
INFINITY 5 stjörnu Golf og Skíða íbúðarhótelið er staðsett í hinum fallega fjalladal Razlog við rætur Pirinn fjalla í suðvestur Búlgaríu skamt frá Grísku landamærunum.
Pirin Golfvöllurinn sem INFINITY stendur við er í Razlog sem er í einstökum fjallasal þriggja fallegra fjallgarða þeirra Rila, Pirin og Rhodope. Og er skamt frá hæðsti tindur Búlgaríu Musala í Rilafjöllum sem er 2925 metra hár.
Bansko skíðastaðurinn á sér sögu allt aftur til 1900 og eru búnar að fara fram miklar endurbætur á skíðamannvirkjum og eru yfir 65 kílómetrar af góðum skíðabrekkum fyrir byrjendur jaft sem góða skíðamenn. Bansko tók á móti yfir 750.000 ferðamönnum veturinn 2007/2008
Hola 1
Sú
fyrsta er þægileg par 4 hola án mikilla vandræða. Best er að stefna milli
tveggja stóru trjánna. Vatnsfallið sem rennur milli fyrstu og níundu rennur í
gegnum brautina og kemur í leik í öðru högginu.
Gott
teighögg ætti að minnka hættuna, en verið varkár að draga ekki annað höggið því
þið gætuð endað í vatninu.
Hola 2
Falleg
par 4 braut sem liggur niður í móti. Glompurnar til hægri gæru verið betri
kostur en daður við vatnið til vinstri.
Hola 3
Fyrsta
par 3 holan. Upphækkaður teigurinn gæti gert þessa vel umluktu holu styttri en
þú hélst, sérstaklega undan vindi.
Hola 4
Þægileg
par 5 hola. Þrátt fyrir fáar glompur gerir þröng brautin það nauðsynlegt að slá
beint.
Hola 5
Miðlungslöng
par 4 hola sem liggur niður í móti. Þrjár glompur þrengja lendingarsvæðið, svo
ef þið eruð ekki því betri úr sandinum væri 3 tré eða járn besti kosturinn af
teig.
Hola 6
Þægileg
par 4 hola uppí móti. Teighögg beint af augum, en gefið vatninu sem liggur að
flötinni vinstra megin auga.
Hola 7
Sennilega
erfiðasta par 5 holan á vellinum. Mjó brautin sem endar í miklum bratta hægra
megin gæti verið virkilega erfitt að hitta með vindinn í fangið.
Hola 8
Tiltölulega
einföld par 4 hola það er að segja ef þú slærð beint og getur forðast
glompurnar.
Hola 9
Falleg
par 3 hola. Ekki hræðast ána og fossinn til hægi of mikið, annars endið þið í
glompunum.
Hola 10
Töff
stutt par 4 hola byrjar seinni 9. Gætið að ánni sem krossar brautina tvisvar
sem gerir bæði upphafshögg og innáhögg erfið yfir vatn.
Hola 11
Löng
par 4 hola. Engar hættur, bara slá langt og beint.
Hola 12
Ef
vindur blæs á móti er þessi par 3 hola lengri en hún virðist. Varist
hinar djúpu glompur við flötina, sem mörgum
reynist erfitt að losna úr.
Hola 13
Stutt
par 4 hola. Til að eiga stutt chip eftir er reynt að slá yfir glompurna 3 til
hægri.
Hola 14
Miðlungslöng
par 4 hola. Spilist til vinstri til að eiga sem styðsta leið yfir ána eftir.
Upphækkuð flötin endar í miklum niðurhalla að aftan svo passið að yfirslá hana
ekki því þá er mjög erfitt högg eftir til baka.
Hola 15
Par
3 hola með eina stöðuvatnið á seinni 9 holunum sem umlykur flötina. Svo verið
viss um að slá beint.
Hola 16
Fyrsta
par 5 holan á seinni 9 holunum. Erfið á móti vindi, en á góðum degi ættu tvö
góð högg að geta bjargað einu eða tveimur höggum frá fyrri mistökum.
Hola 17
Lítillega
niðurímóti par 4 hola. Er venjuleg undan vindi og gott upphafshögg gerir
innáhögg með járni yfir ána og upp á upphækkaða flöt tiltölulega einfalt.
Hola 18
Par
5 hola sem gefur auðveldlega fugla, svo fremur þú getur forðast
glompurnar.
Tvö högg inn á flöt og þú
ert í góðum málum.
Nánari upplýsingar
Marsveinn Lúðvíksson
2heimili@dobro.is
|