Búlgaría Fasteignir Fjárfestingar Hús Golf Skíði Sundlaugar Endurbyggingar.
Hús til sölu, Hús í sveitum, Hús til endurbyggingar, Íbúðir á byggingarstigi,
Íbúðir, Golf og störnd, Golf og skíði, Land, Veiði, Fjárfestingar í Búlgaríu.
Sitemap
D.O.B.R.O. HQ Office Time :
Sunday 05th of September 2010 (ver 1.3.22)
Upphafssíða
Til sölu eftir flokkum
Til sölu eftir svæðum
Til leigu
Allar eignir til sölu
Um Okkur
Hafðu samband
Valmynd
Upphafssíða
Til sölu eftir flokkum
Til sölu eftir svæðum
Til leigu
Allar eignir til sölu
Umsjón Fasteigna
Endurbygging og viðhald
Þjónusta eftir kaup
Fasteignatryggingar
Rent-A-Car Þjónusta
Hótel Perla G.Oriahovitsa
G. Oryahovitsa Airport
Nánari upplýsingar
Kaupferill undirbúningur
ORÐABÓK KAUPANDA
OFF-PLAN Greiðsluáætlanir
Verðlag í Búlgaríu
Langtímadvöl
Spurningar og svör
Búlgaría lesið þetta
Lánamöguleikar
Fjárfestingamöguleikar
Áhugaverð svæði
Golfströndin
Vetrarsport - skíði
Golf við Veliko Turnovo
Hunting Tourism
Tenglar
Links
Link to Us
Búlgaría
Búlgaría Fasteignir Fjárfestingar Hús Golf Skíði Sundlaugar Endurbyggingar. Hús til sölu, Hús í sveitum, Hús til endurbyggingar, Íbúðir á byggingarstigi, Íbúðir, Golf og störnd, Golf og skíði, Land, Veiði, Fjárfestingar í Búlgaríu.
Ítalía – Við kynnum nýtt svæði á suður
Ítalíu Calabria fyrir þeim sem áhuga hafa á að festa þar kaup á fasteign.
En Ítalía er einstök hvort heldur sem er
fyrir landslag, matargerð, menningu eða bara tungumálið.
Og kynnum við þessar fasteignir á vefsíðu
okkar fljótlega.
En áhugasamir geta
einnig sent tölvupóst á 2heimili@dobro.is
og óskað eftir nánari upplýsingum.
Calabria er táin á Suður Ítalíu.
Mikil náttúrufegurð og menning og
stórkostlegar hreinar strendur.
Svæðið er fjöllótt með hin tignarlegu
Pollino-fjöll í norðri, skógi vaxna Sila sléttuna um miðbikið og Serre og
Aspromonte fjallgarðana í suðri og stórkostlega strandlengju með hreinustu
baðströndum Evrópu.
Calabria hefur hingað til ekki notið mikillar athygli og þess vegna er
fasteignaverð þar hagstætt, fjölbreytt menning, frábær Ítalskur matur og
hundruð kílómetra af fallegri strandlengju og margar af bestu baðströndum
Ítalíu.
Calabria bíður upp á úrval sjávarfangs
enda örstutt á fengsæl fiskimið.
Og eru
fjölmargir staðir sem bjóða upp á sjávarrétti.
Eins og Sverðfisk og Túnfisk.
Síðustu tvær aldir hefur verið mikill
fólksflótti frá Calabria til Norður Ítalíu, Evrópu, Ástralíu, Argentínu,
Brazilíu, Canada og USA.
Og er orðið
vinsælt hjá afkomendum þessa fólks að koma aftur á heimaslóðir eða fá sér
fasteignir.
Calabria bíður einnig upp á golfvelli,
skíðasvæði, köfun, frábæra siglingaaðstöðu og einnig er hægt að stunda
skotveiði.
Örstutt er að skreppa yfir
sundið til Sikileyjar og einnig ganga ferjur til Möltu. Tíðar lestarferðir eru
til Rómar.
Samgöngur eru góðar.
Flugvellir eru við Reggio di Calabria og
Lamezia Terme en aðal alþjóðlegu flugvellirnir eru Palermo á Sikiley og
Napoli.
Hraðbrautin A3 er aðal
þjóðvegurinn til norðurs og tengist síðan A1 hraðbrautinni.
Calabria er mjór skagi sem nær þrjú
hundruð kílómetra út í Miðjarðarhafið. Hann er fremst á „skónum“ milli
Tyrrhenia hafsins í vestri og Jóníska hafsins og Taranto flóans í austri.
Messinasund aðskilur hann frá Sikiley og þar sem sundið er mjóst milli Capo
Peloro á Sikiley og Punta Pezzo í Calabriu er það aðeins 3,2 kílómetrar. Þó
sjórinn sé alls staðar nálægur í Calabriu er héraðið samt þekkt sem
fjallahérað.
Þrír fjallgarðar eru þar: Pollino, Sila og
Aspromonte. Allir eru þeir sérstæðir og með sitt eigið plöntu og dýralíf.
Pollino fjöllin í norðri eru ógreiðfær og
óslétt og afmarka Calabriu á eðlilegan hátt frá öðrum hlutum Ítalíu. Sumir
hlutar fjallgarðsins eru skógi vaxnir en á öðrum svæðum er lítill gróður. Í
fjöllunum vex Bosnian furuafbrigðið og er það meðal annars í þjóðgarðinum í
Pollino.
La Sila er stór og fjöllótt háslétta um
það bil 1.200 metra yfir sjávarmáli og liggur eftir miðjum endilöngum skaganum,
2.000 ferkílómetrar að stærð. Hæsta fjallið er Botte Donato sem er 1.928 metra
hátt. Mikið er af fjallavötnum og þéttum barrskógum á svæðinu. Skaginn mjókkar
í Savutodalnum sem byrjar á Sila sléttunni og nær allt til Saint Eufemiaflóa.
Voldugur Aspromonte fjallgarðurinn myndar
syðsta hluta Ítalíuskagans og liggur sjór að honum á þrjá vegu. Þessi
sérkennilegi fjallgarður rís hæst í fjallinu Montalto Uffugo sem er 1.995 metra
hátt.
Ekki má gleyma að minnast á að mafían í
Calabria heitir “
la’ndrangheta” og er hún óháð þeirri á Sikiley og á
hún rætur margar aldir aftur í tímann enda þreifst hún vel í fátæktinni. Hún
starfar enn í stærstu borgum og stjórnar fíkniefnaheiminum.
Og skiptir sér ekkert af venjulegum
fasteignaeigendum.
Veðrið í Búlgaríu
Rent-a-Car Þjónusta
Ford Fiesta A/C 2007,
Loftkæling, Airbag,
Útvarp / CD,
Beinskiptur, 5 dyra,
Verð aðeins
175 Evrur vikan
í Golden Sands og Varna
Hunting in Bulgaria
About Veliko Turnovo
. .
Tengdir notendur
(1) Guest (6Clk|12min)
... (119887)
Subscribe for News
Golfströndin
Svæðið norður af Varna er
farið að ganga undir nafninu Golfströndin. Nánar tiltekið svæðið
norður af Golden Sands sem Íslandingar þekkja vel en Terra Nova hefur
verið með ferðir þangað.
Vetrarsport - skíði
(20 kílómetra frá Gabrovo og 48 kílómetra frá VelikoTurnovo)
Uzana svæðið er stórt og nær upp í 1420 metera hæð við rætur Ispolin fjallstindar í balkan fjöllum. Það er staðsett 20 kílómetra frá Gabrovo og er í landfræðilegri miðri Búlgaríu. Ferskt fjallaloftið og náttúran gera Uzana stórkostlegt. Uzana er upphafsstaður margra góðra gönguleiða t.d. Mazalat chalet, Ispolin and Shipka tinda auk fleira áhugaverðra staða.
Búlgaría Fasteignir Fjárfestingar Hús Golf Skíði Sundlaugar Endurbyggingar. Hús til sölu, Hús í sveitum, Hús til endurbyggingar, Íbúðir á byggingarstigi, Íbúðir, Golf og strönd, Golf og skíði, Land, Veiði, Fjárfestingar í Búlgaríu. Við erum sérfræðingar í fasteignamarkaðinum í Búlgaríu, fjárfestingum og byggingum húsa. Veitum ráðgjöf og alla þjónustu fyrir viðskiptavini okkar.
D.O.B.R.O. - (Direct Outgoing Bulgarian Real-estate Offers) Iceland 2008, www.dobro.is Powered by Maxtrade AIO Supported by SBATG